Velkomin

Velkomin á heimasíðuna okkar. Hér er að finna allar nauðsynlegustu upplýsingarnar um

okkur.

 

 

Um okkur

Driffelli ehf hefur veitt og veitir enn bókhalds- og framtalsþjónustu frá því í desember 1996. Rekstur gistiheimilisins hófst í lok árs 2007 í nýstandsettu húsnæði. Boðið er uppá ódýra gistingu í hjarta Keflavíkur en samt utan skarkala miðbæjarlífsins. Gistiheimilið er kjörið gistiheimili fyrir þá sem eru að fara í morgunflug eða að koma úr kvöldflugi og vilja lengja fríið aðeins.

 

Hafir þú einhverjar spurningar skalt þú ekki hika við að hafa samband

 

 

AÐSTAÐA

Gistiheimilið Heiðarvegi 4 býður uppá þrjú  tveggja manna herbergi sem deila eldhúsi og hreinlætisaðstöðu. Öll aðstaðan er ný og hugsuð með þægindi gesta í fyrirrúmi. Nettenging er á öllum herbergjum. Eldunaraðstaða er í eldhúsi auk aðstöðu til að snæða matinn. Ef þú hefur ekki áhuga á að elda eigin mat er stutt að fara á einhvern af mörgum veitingastöðum í nágreninu.  Sér innganga er inn í gistiaðstöðuna.

 

 

 

Heiðarvegur 4, 230 Keflavík driffell@driffell.is Tel: +354 699 5529 Fax: +354 421 5075

 

 

 

 

 

UMHVERFI

Boðið er upp á glæsilega aðstöðu í hjarta Keflavíkur þar sem stutt er í alla þjónustu, svo sem banka, verslanir, veitingastaði, hótel, skemmtistaði, snyrtistofur, sundlaug, gallerí, bíleigu, allt innan 10 mínútna göngufæris. Bláa lónið er í um 20 mínútna fjarlægð og um 30 mínútur tekur að fara hring í  gegnum Garð og Sandgerði þar sem marga áhugaverða staði er að sjá og eins er ekki síðra að keyra hring í gegnum Hafnir Reykjanes, Grindavík, Bláa Lónið, þar sem margir áhugaverðir staðir eru s.s. hinn víðfrægi Gunnuhver og Reykjanesviti. Um 45 mínútur tekur að aka til Reykjavíkur.